04.09.2006 04:35:12 / HypnoToad

Ný síða

Ég er fluttur, bæði í raunveruleikanum og í netheimum. Ný síða gott fólk:

http://guffaluff.bloggar.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 15:56:22 / HypnoToad

The Major is back!

Góðan og blessaðan eftirmiðdag, gott fólk. Aðeins fjórir dagar frá síðustu skrifum en ég er mættur aftur. Ég veit það er erfitt að kyngja þessum fréttum, en hér er þetta, hvítt á gráu.

Anyways, helgin er búin að vera mjög fín bara. Ég kom hérna svona um kvöldmatarleitið á föstudeginum með pápa, hann var að sækja Hörð í bæinn þannig um að gera að nýta sér það. Um kvöldið tók ég smá rúnt og rakst þá á hann Bjarka, og fór með honum til Gaua. Ákveðið var að taka einhverja góða mynd, þannig við brunuðum upp á Selfoss og gerðumst alveg einstaklega pirrandi viðskiptavinir í Snælandi. Mættum þarna rétt fyrir lokun, vorum alveg svona 15-20 mín að komast að samkomulagi með hvaða mynd ætti að taka, og svo var eintómt vesen þegar kom að því að borga. En já, við tókum "Green Street Hooligans", sem var bara helvíti góð verð ég að segja, og var Bjarki mér sama sinnis, veit ekki með Gaua...Gaui tjáðu þig. Ef þið vitið ekki hvaða mynd þetta er hægt að sjá nánar um hana hér.

Í gær tók ég mér ýmislegt fyrir hendur. Við Bjarki fórum á Selfoss að skila myndinni en þurftum fljótlega að fara heim því mútter þurfti bílinn. Fórum svo í krokket með Snorra og Herði, maður fékk hálfgert flashback við að fara í þetta, stundaði þetta grimmt á mínum yngri árum. Fórum svo í körfu á þessa líka massafínu körfu okkar og kepptum við Alexander frænda og co, með misjöfnum niðurstöðum, förum ekkert nánar út í það. Við kíktum svo aðeins á sjóinn á bátnum þeirra og Bjarki gerði tilraun til að renna fyrir fisk, með engum árangri sökum mikils straums. Fljótlega dreif ég mig svo heim og kíkti svo á einhverja hljómsveitakeppni sem var í Hólmaröst þar sem Heimir og félagar tóku þátt. Böndin voru jafn misjöfn og þau voru mörg, en áttu eitt sameiginlegt, en það var hræðilegt sound. Hljóðmaðurinn var ekki að standa sig þarna, langaði helst bara að stugga honum í burt og taka við! Trommurnar yfirgnæfðu allt of mikið, og bassinn og gítarinn rann oftast nær saman og mynduðu miður skemmtilegan "wall of mud". Brimrót bar sigur úr bítum í þessari keppni, og áttu það svo sem skilið held ég bara, koma manni alltaf jafn mikið á óvart. Gerði nú ekki fleira þennan daginn, fór bara heim og tók því rólega það sem eftir lifði kvölds/nætur.

Í dag glápti ég að hluta til á formúluna, var hálf dottandi yfir henni. Alonso þurfti endilega að sigra, á heimavelli í þokkabót, og eykur þar með forustu sína á Schumacher. Er farinn að halda að hann eigi eftir að taka þetta bara, 2. árið í röð. En það skýrist í næstu keppnum.

Það er samt verið að reka á eftir mér, á að fara að henda okkur Herði til okkar heima í borg óttans, þannig ég segi þetta gott.

Ich will später hier mehr geschreiben. GrüB godt!

» 9 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 00:09:33 / HypnoToad

Gúdag Gúdag

Ætli maður verði nú ekki að kæta landann með nýrri og ferskri færslu á þessari annars líflegu síðu. Ætla mætti að eitthvað hefði gerst síðan síðast, og svo er nú raunin. Ekkert afdrifaríkt þó, bara svona þetta venjulega. Það er búið að vera brjálað að gera í vinnunni og ég fékk ansi vel útborgað um mánaðarmótin. Ég henti strax eftir útborgun hárri upphæð í innborgun á námslánið mitt. Ef það á eftir að vera svona mikið að gera í sumar þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að ég geti klárað að borga þetta niður fyrir haustið, sem er náttúrulega ekkert nema gott mál.

Þessi helgi var mjög fín bara. Á föstudeginum sofnaði ég tímanlega því ég þurfti að mæta í vinnu á laugardeginum. Eftir vinnu var ég svo fljótlega sóttur af Önnu Lindu og Tinnu og fékk að fljóta með þeim niður á Stokkseyrina með allt mitt hafurtask. Á laugardagskvöldinu kíkti Kramer í heimsókn með gítar og magnara og við plöntuðum okkur niður út í skúr heima og glömruðum í dágóðan tíma. Allt of sjaldan sem maður spilar eitthvað með öðrum gítarleikara, gaman af því. Seinna um kvöldið horfði ég og Bjarki á úrslitaleik Phoenix og Lakers í 1. umferð úrslitakeppni NBA. Þetta var vægast sagt ömurlegur leikur þar sem Lakers gátu ekki blautan en Phoenix voru óvenju ofvirkir. Áður en þessi rimma hafðist datt mér varla í hug að Lakers gætu komist í 2. umferð, enda ekki með mjög sterkt lið, en eftir að hafa komist í 3-1 stöðu hélt ég nú að þeir myndu hafa þetta. En nei, Phoenix þurftu endilega að vera heimskir, vinna 3 leiki í röð og vinna einvígið, urðu þar með 8. liðið í sögu NBA til að ná þeim árangri. Lakers settu líka met í að vera lélegir, þetta er langstærsta tap félagsins í 7. leik í úrslitakeppni frá upphafi. Nóg um það, verð bara pirraður að tala um þetta!

Anywho, á sunnudeginum glápti ég á formúluna þar sem Schumacher fór með sigur af hólmi í Nurburgring kappakstrinum. Eftir frekar slappa byrjun hjá Ferrari, þá hafa þeir unnið síðustu 2 mót og voru í 1. og 3. sæti í þessari keppni. Ég hef fulla trú á að þeir verði í slagnum um titilinn í ár, engin spurning!

Nú er þessi færsla farin að líkjast íþróttafréttum, þannig ég fer yfir í annað. Framundan er bara vinnuvika, vinn líklega laugardaginn líka, og það þýðir kippa af bjór! Afar skemmtileg stefna fyrirtækisins, maður fær kippu af 330ml bjór fyrir hvern laugardag sem unnið er. Ég fékk tvær núna á laugardaginn þar sem ég átti eina inni. Ekki slæmt þetta! Tek með mér smá byrgðir næstu helgi á Stokkseyri. Ætla mér að koma aftur um helgina, tékka á Heimi og co. að spila á einhverjum tónleikum í Hólmaröst á laugardagskvöldinu, svo er aldrei að vita nema maður slafri smá mjöð í sig eftir það!

Að lokum bendi ég á nýjan lið á síðunni hérna til vinstri: "Hvað er ég að hlusta á þessa vikuna?". Þetta er yfirlit yfir þær hljómsveitir sem ég hef hlustað mest á í vikunni. Sé akkúrat enga ástæðu fyrir ykkur til að tékka á þessu, en ykkur er frjálst að gera svo!

Ég ætla að segja þetta gott núna, og ætla ekki að segjast reyna að vera duglegri við að blogga í framtíðinni, því ég get engan vegin sagt það með hreinni samvisku!

En þangað til næst,
take care now, bye bye then!

» 7 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 23:17:41 / HypnoToad

Guess what, PICTURE TIME!

Jæææja, ég er ekki í bloggstuði fremur en fyrri daginn, ætlaði bara rétt að láta vita af því að ég var að henda inn nýrri mynd í myndasvæðið, heitir "Arty Farty Parker" og er af elskunni minni liggjandi uppi í rúmi. Endilega tékkið og segið hvað ykkur finnst. Er í mikilli blogglægð sem stendur þannig ég segi ekkert fleira, blogga betur síðar.

Adios.

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 19:47:14 / HypnoToad

Bleikir fílar og dansandi krókídílar! Ég er fluttur!

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan ég lét á mér kræla hérna síðast, alveg hátt í mánuður! Sei sei já, það er ekki sniðugt. Síðustu blogg mín hafa öll verið hálfgerð endurkomublogg vegna lítilla skrifa, og þessi færsla er engin undantekning.

Helsta ástæðan fyrir bloggleysi er almenn leti, er orðinn svo fjári latur við þetta, en önnur og göfugri ástæða eru búferlaflutningar mínir. Eins og ég gerði skil á í eldra bloggi, þá er búið að úthluta mér íbúð á Stúdentagörðunum, og nú er svo komið að því að ég er fluttur inn. Flutti inn á þriðjudeginum 4. apríl og hef nú sagt skilið við íbúðina á Miklubrautinni. Þó ég hafi nú alveg haft það gott þar, þá er þetta mun betra. Lægri leiga, betri íbúð, frí háhraða nettenging, nálægt skólanum og síðast en ekki síst, gluggar! Sjúbbidú! Merkilegt nokk, þá er þessi íbúð hönnuð fyrir fatlaða, og ég gerði mér þær vonir um að geta aukið mér leti með því að nota sjálfvirka opnarann á hurðinni, en svo er ekki. Ég fékk svo ekki netið fyrr en í fyrradag, þannig ég var búinn að vera netlaus í um viku, sem útskýrir enn frekar bloggleysi mitt. En allavega, þetta er fínasti staður og gott að vera kominn með öruggt húsnæði fyrir skólann þegar ég byrja aftur í haust. Skondið, hafði búið í sama húsinu í tæp 20 ár, en nú hef ég svo flutt tvívegis á rúmlega hálfu ári.

En að öðru. Síðasta helgi var helvíti skemmtileg. Á laugardeginum héldu 15 (held ég hafi töluna rétta) vaskir Stokkseyringar með langferðabíl í höfuðborgina í þeim erindagjörðum að sletta ærlega úr klaufunum. Við byrjuðum að súpa hjá Gaua og var það mjög fínt bara. Ég var með heljarinnar tilraunastarfsemi þetta kvöld, hafði nefninlega keypt mér 8 bjóra, alla af mismunandi tegund, og 7 af þeim hafði ég aldrei smakkað. Fékk mér Erdinger, Old Speckled Hen, Bitburger, Kozel, Delirium Tremens, og 3 aðra sem ég man ekki nöfnin á í augnablikinu. Þeir voru vissulega misgóðir, en Delirium Tremens bar af í ógeði. 8.5% ruddi, veit ekki hvort þetta eigi að teljast bjór, en slæmur var hann! Ástæðan fyrir að ég keypti hann var flaskan. Hún var húðuð með einhverju einkennilegu fölbrúnleitu efni, með mjög svo fancy bláum álpappír á stútnum, og svo bleikir fílar og dansandi krókódílar á miðanum. Sá mig bara tilneyddan til að kaupa þetta. En já, eftir upphitun hjá Gaua var brunað í bæinn og farið á smá pöbbarölt. Hópurinn dreifðist svolítið en sameinuðumst svo öll fyrir heimför. Átæði mikið greip mig eins og venjan er þegar ég er að drekka, og ég held ég hafi aldrei verið jafn snöggur að hakka í mig 2 stykki ostborgara og pylsu. Ég ætlaði mér að verða eftir í bænum, en á leiðinni í bæinn áttaði ég mig á því að ég var ekki með lyklana, gleymdust á Stokkseyrinni. Þannig ég flaut með til baka og tók bara rútu daginn eftir. Þetta var samt helvíti magnað kvöld bara, mjög gaman.

Það hefur verið alveg brjálað að
gera í vinnunni þessa vikuna, því það þurfti að klára margt fyrir páska, og vinna upp þessa frídaga sem eru í kringum páskana. Þannig ég var að vinna á mánudag og þriðjudag frá kl. 08:00-21:30. Ágætis yfirvinna það. Var frekar bugaður eftir þessa 2 daga samt, og var feginn að við unnum ekki svo mikið á miðvikudeginum líka eins og stefnan var, vorum bara svo dugleg þessa tvo daga að þess þurfti ekki.

Nú er ég bara á Stokkseyri, kom í gær með Valla og frú, og verð líklegast fram á mánudag. Stefnan er að reyna að spila eitthvað aðeins, erum ekki nógu virkir í þessu! Ekkert djamm var planað fyrir fríið, ætlaði mér bara að vera slakur, en Steina hefur tekist að fá mig á smá sukk í kvöld. Förum á Selfoss á eftir og hittum Vigni og Guðrúnu, hittumst heima hjá henni og ætlum að spila Trivial eða eitthvað sniðugt og súpa nokkra öl. Ætli það sé svo ekki pakkarinn bara, um lítið annað að velja.

En ég ætla að setja punktinn hér og grípa í gítarinn svolítið.

Later.

"Reality is an illusion created by a lack of alcohol."


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 15:20:41 / HypnoToad

Sjáðu dverginn! Haha, ÉG HATA HANN!

Ég er að verða allt of latur við þetta bloggerí undanfarið, það liggur enginn vafi á því. En ég ætla að reyna að halda þessu áfram.

Sem stendur er ég á Stokkseyrinni góðu, í fyrsta skipti í 3 vikur, sem er ekki nógu gott. Kom hérna á föstudeginum ásamt miklum meistara, Herði Frans. Hef tekið því rólega bara um helgina, kemur kannski ekki mikið á óvart. Er búinn að vera frekar óvirkur í skemmtanalífinu í tiltölulega langan tíma núna, en þar spila peningar, já eða kannski frekar fjarvera þeirra, inn í. Þar sem febrúarmánuður fór alveg í vaskinn í veikindum og atvinnuleit stend ég ekkert sérlega vel fjárhagslega.

Nú hef ég hinsvegar broslega fréttir að færa, en þær eru að ég er kominn með vinnu hjá Bros Auglýsingavörum og líkar vel. Þægilegri vinnutími en hjá Landspítalanum, skemmtilegra starfsfólk, þægilegt andrúmsloft, og umfram allt, betur borgað. Einnig er mjög þægilegt fyrir mig að komast þangað, tek bara strætó sem stoppar við Skeifuna og þar er stutt ganga upp í Bros. Mín störf þarna kenna ýmissa grasa, en er mikið í að pakka og undirbúa vörur fyrir pökkun og prentun, ásamt einhverjum merkingum. Eini ókosturinn sem ég sé er að þar sem ég á eftir að vera þarna fram á haust, þá mun ég ekki vinna úti í sumar. Þá þýðir ekkert annað en að vera duglegur að koma á Eyrina og nauðga sundlauginni eins og í fyrra. Finnst svo eins og sundlaugin ætti að fá vínveitingarleyfi eftir 22:00 á kvöldin þannig maður gæti hellt í sig í sundi um helgar. Hversu magnað væri það!

Yfir í annað. Ég verð í bænum í sumar eins og fram hefur komið, og ein helsta ástæðan fyrir því er að ég er kominn með íbúð á  Stúdentagörðunum og flyt ég inn í byrjun næsta mánaðar. Þetta er vissulega léttir því ég gæti ekki verið þar sem ég er núna í sumar og nú er ég kominn með húsnæði fyrir haustið þegar ég byrja aftur í skólanum. Hefði nú alveg verið til í að eyða sumrinu á Stokkseyri, en það er ekki um allt kosið, og eins og ég segi, þá verð ég bara að vera duglegur að koma á Stokkseyri um helgar.

En að líðandi atburðum. Helgin var tekin rólega bara og glápt á formúluna. Á fösudeginum ákvað ég að vaka bara eftir tímatökunni sem var kl. 6 á laugardagsmorgni. Það létt verk og löðurmannlegt fyrir næturhrafninn sjálfan og ég lagðist svo til hvílu rúmlega 7 að tímatöku lokinni. Fékk þó ekki mikinn svefn því ég vaknaði fyrir hádegi við hann Flosa, sem fyrir þá sem ekki vita er einn af okkar gaukum. Þá hafði honum verið plantað inn í herbergi til mín og ég svaf ekki meira eftir það. Fór svo í körfubolta með Bjarka eftir hádegi og þar spriklaði maður í dágóðan tíma, mjög hressandi, og alltaf gaman í körfu að sjálfsögðu. Um kvöldið kíkti ég og spilaði svolítið með Heimi þar sem við vorum eitthvað að flippa með hin ýmsu lög. Sofnaði svo bara frekar tímanlega á mínum mælikvarða um kvöldið og ætlaði mér að vakna í formúluna í morgun. Það gekk ekki betur en svo að ég vaknaði jú kl. 6:30, en ákvað að snooza í 10 mín og fara svo á fætur. Eitthvað hef ég þó gert vitlaust við stillingu klukkunar því ég vaknaði næst um hálf 11, og keppnin búin. Þannig ég einangraði mig bara frá umheiminum og horfði svo á endursýninguna kl. 11:30, og ég verð að segja eins og er að mér líst ekkert á þessa yfirburði hjá Renault liðinu. En ég ætla ekki að snúa þessu upp í formúlu umræður.

Ég var að bæta þremur myndum við undir "Myndir" hér til vinstri. Þær eru allar með svipuðu sniði. Ein er af mýrinni vestan við Eyrarbakka (sem mér finnst flottust af þessum þremur), önnur af Stokkseyrarfjörunni hér neðan við húsið okkar og sú þriðja af sjónum bakvið hjá veitingastaðnum Hafinu Bláa. Check them out, yo!


Mýrin við Eyrarbakka
Sjórinn við Ölfusárósa
Fjaran á Stokkseyri

Þá er þetta bara komið í bili, skal gera mitt besta í að vera aktívari hérna á næstunni.

"You can´t be late until you show up."


» 16 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 17:33:27 / HypnoToad

I´m back in black!

Engar áhyggjur, ætla ekki að losa alvarlega um málbeinið núna, er rétt að vekja athygli á því að ég er búinn að henda inn nýrri upptöku hérna til vinstri. Að þessu sinni er það "Back in Black" með AC/DC. Ég reddaði mér þessari líka góðu backing track á netinu, með söng og öllu, sem ég tók svo gítarinn upp yfir. Rhythma gítarinn þegar ég er að sólóast er samt hluti af backing trackinu, en annars er allur gítar ég. Endilega tékkið á þessu.

Vil líka óska Erlu skjótum bata, þú ert nú baráttumanneskja og jafnar þig á þessu ef ég þekki þig rétt!

Later..

» 16 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 00:53:38 / HypnoToad

Langt um liðið

Vegna fjölda áskoranna er ég mættur hér enn á ný, með allt það nýjasta úr mínu æsispennandi lífi. Hold on to your butts, 'cause you're going in for a rough ride!

Nei nei, ég segi nú bara svona. Annars er það svona helst að frétta að ég er ekki lengur starfsmaður Landspítalans. Ég ætlaði mér að mæta í vinnu þriðjudaginn 13. feb, pápi skutlaði mér á mánudeginum aftur í bæinn. Heilsan var orðin nokkuð góð, streptókokkarnir voru nánast horfnir og ég orðinn vinnufær á ný. En kárnaði nú gamanið þegar leið á kvöldið, því
minn gamli erkióvinur, eyrnabólgan, lét til sín taka. Siggi, pabbi Guðjóns, bauðst til að skutla mér á læknavaktina, sem ég þáði, og eftir að hafa athugað á mér eyrað fékk ég lyfseðil fyrir eyrnadropa, sem ég er að nota enn í dag. Nóttin, aðfaranótt mánudags, var held ég bara sú allra versta sem ég hef upplifað. Droparnir fóru ekkert að deyfa á sársaukann fyrr en daginn eftir og ég engdist bara í rúminu mínu í svona 7-8 tíma áður en ég sofnaði loks. Ég var s.s. aftur orðinn óvinnufær. Á miðvikudeginum var svo hringt og sagt að það þyrfti að ráða í þetta starf. And that was that.

Nú eru bráðum 2 vikur síðan ég fékk eyrnabólguna, og hún er enn til staðar, þó aðallega sem smá þrýstingur og stöðugt leiðigjarnt suð í eyranu, en verkurinn er þó farinn. Ég var að vonast til þess að ég væri vaxinn fram úr þessu eyrnabólguveseni, en svo er greinilega ekki. Var mikið eyrnabólgubarn þegar ég var yngri, og er það greinilega enn. Þetta er með því mest pirrandi sem ég lendi í, sérstaklega þegar þetta endist svona lengi, hef ekki lent í þessu svona svakalega og nú. Ég veit að Biggi Al kannast við þetta og hatar, sameiginlegur óvinur okkar!

Í þessari viku hef ég verið að sækja um vinnur á hinum ýmsu stöðum og er með slatta af umsóknum liggjandi. Vonandi fæ ég eitthvað úr þessu sem fyrst, I need the greens.

Það verður ekkert djammað þessa helgina fremur en venjulega. Það eru nú 3 vikur síðan ég hef djúsað eitthvað, síðast var það 3. feb í vísindaferðinni góðu. Maður tekur eitthvað til við þetta aftur þegar vinnumál skýrast og heilsan verður á við hest á ný. Ég hafði sama og ekkert orðið veikur í nokkur ár núna, og tek svo þessa líka þvílíku törn. Ætla bara að vona að ég sé nú buinn með kvótann fyrir komandi ár.

Annars var ég að koma úr bíó núna áðan, ég, Guðjón og Alfreð vinur hans kíktum á "Good Luck and Good Night". Mjög góð mynd að mínu mati, en ég er ansi hræddur um að þetta sé ein af hinum alræmdu "Guffamyndum". Þeir sem hafa stutt athyglisspan eiga ekki eftir að fíla þessa mynd. Þið getið kynnt ykkur hana hér.

Á morgun stefni ég að því að koma mér heim á Stokkseyrina og éta upp bollurnar sem hafa verið bakaðar heima fyrir. Fæ hroll bara við tilhugsunina að Snorri sitji einn að kræsingunum án mín til að drýgja hans skammt! Svo ætla ég mér að fá að bera nýju blikkbeljuna hans Steina augum og leggja mat mitt á gripinn.

Held ég hafi þetta ekkert lengra í þetta sinn, og lýk þessari færslu á orðum Ed Morrow:

"Good luck, and good night."

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 05:29:13 / HypnoToad

Streptococcus Oralis!

Góðan daginn/morgun/nótt, fer allt eftir því hvernig þið lítið á þetta. Nú sit ég hér í mínum heittelskaða (kaldhæðni) eldhússtól við tölvuna á Stokkseyrinni, andvaka eftir mikinn svefn í dag, og tel mál til komið að henda inn eins og einu stykki færslu. Mál standa þannig að ég er búinn að næla mér í bölvaða Streptókokkana og er búinn að vera veikur síðan á mánudagskvöldi. Þegar ég kom heim um kl. 22:30 úr vinnunni (kem að því hér á eftir) var ég með ofurlitla hálsbólgu og taldi það ekkert óeðlilegt svo sem og hélt það myndi hverfa um nóttina. En síður en svo, ég vaknaði eldsnemma á þriðjudeginum með bólginn háls og átti mjög svo erfitt með að kyngja. Ekki bætti úr skák að munnvatnsframleiðslan var í algjöru hámarki, en það fylgir oft sýkingum í hálsi. Þannig ég var vaknandi í sí og æ, búinn að útslefa koddann alveg, varla þurr blettur eftir til að liggja á! Vægast sagt óþolandi! Ég lifði á fljótandi fæði á þriðjudeginum og miðvikudeginum, gat svo loks étið eitthvað almennilegt í gær (eða fyrradag, eftir því hvernig þið lítið á málið).

Ég er nú allur að skána, get loks étið eins og eðlilegur maður án þess að setja upp svip Anti-Krists við hvern munnbita og engjast eins fiskur á þurru landi. En ég er enn mjög slappur með töluverðan hita þannig það er ekki einu sinni víst hvort ég meiki það í vinnuna á mánudaginn heldur. Sem leiðir mig að því.

Á mánudeginum síðasta fékk ég sem sagt vinnu. Ívar hafði bent mér á að þap væri mögulega eitthvað að hafa hjá Landspítalanum, þannig ég hringdi á mánudagsmorgninum og mannaði kálið eins og margir vilja orða það. Það fór þannig að ég átti að mæta á kvöldvakt sem vaktmaður í Fossvoginn samdægurs. Vitaskuld gerði ég það, og líst svo sem sæmilega á þetta, miðað við þennan eina dag sem ég hef unnið þarna virðist þetta vera frekar rólegt starf. En það verður nú að segjast eins og er að það lítur afskaplega illa út að mæta fyrsta daginn, og vera svo bara veikur eftir það, og ekki einu sinni víst hvort ég geti mætt á mánudaginn. Auðvitað get ég ekkert að þessu gert, en þessir Streptókokkar létu sjá sig á versta hugsanlega tíma!

Á miðvikudeginum var gamla settið á ferð í bænum þannig ég fór bara með þeim heim til að slappa af á Stokkseyrinni. Maður hefur samt ekki heilsu í að
gera neitt, hef ekki spilað á gítar núna í ca. 5 daga, sem er hræðilegt að heyra! Þannig Herdís, ég fæ kannski hjá þér gítarinn á morgun fyrst þú ert búin að gefa grænt ljós á ránið. Í veru minni hérna á Stokkseyri hef ég bara verið að lesa mikið, hanga í PS2 og sofa, það er svona basicly það sem ég hef verið að gera. Mikið gaman, mikið stuð.

Síðasta föstudag keypti ég mér Line 6 Toneport UX2, sem er fyrir þá sem ekki vita upptökugræja sem gerir mér kleyft að taka upp gítar, bassa og söng (not gonna happen) í flottum gæðum inn á tölvuna mína í gegnum magnara hermi (meðfylgjandi forrit). En ef mér líkar það ekki eru líka 2 input fyrir mic (fyrir söng t.d.), þannig ég get alveg eins micað upp magnarann ef mér líkar það betur. Sehr gut! Þetta finnst ykkur samt eflaust afar óáhugavert þannig ég stoppa hér.

Hmm, hvað er meira í fréttum...já ég pantaði mér disk af Ebay fyrir skömmu og var að fá hann í fyrradag. Það ku vera með bandinu Hunger´s Mother og heitir diskurinn eftir bandinu. Þetta er lítt þekkt, írskt, blúsað rokkband og er að mér finnst einstaklega skemmtilegt í hlustun. Valli, ég krefst þess að þú verðir búinn að hlusta á þessi 2 lög sem ég linkaði á þegar þú lest þetta (eða kommentar)!

Er þetta ekki að verða komið ágætt bara? Þarf virkilega að fara að sofna því ég þarf að taka inn fúkkalyfin frekar snemma til að halda reglu á því, maður gerir allt sem í sínu valdi stendur til að drepa þessa litlu bjána sem eru að reyna að skemma mann að innan. Magnað hvað svona agnarsmá kvikindi geta haft mikil og slæm áhrif, alveg hreint magnað!

Ætla að enda þetta blogg á afar áhugaverðu máli. Á vafri mínu um fréttavef morgunblaðsins rakst ég á þetta:

"Ókunnugt fólk gengur í hjónaband

- Maður og kona sem hafa aldrei hist og þekkjast ekki ætla að ganga í hjónaband í Bretlandi í dag. Þau unnu í keppni sem útvarpsstöð efndi til og eru þetta verðlaunin."

Alla fréttina má finna hér: http://mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1183583

Ég get ekki annað en glott við að lesa þetta, allir þessir leikir eru að verða fáránlegri og fáránlegri. Ef ég reynist sannspár, þá verður ekki langt þar til raunveruleikasjónvarp með þessu sniði lítur dagsins ljós, og verður þá vafalaust sýndur á Sirkus.

En jæja, ég ætla að hætta þessu röfli og koma mér í fletið og lesa mig í svefn.

So long, see you in the funny papers!

 


» 18 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 15:56:47 / HypnoToad

Breyttir tímar

Tímarnir breytast og fólkið með. Það á svo sannarlega við skal ég segja ykkur, þið verðið væntanlega undrandi yfir komandi fregnum.

Frá og með deginum í dag, þá er ég hættur í líffræðinni. Öðrum óafvitandi hefur líffræðiáhugi minn farið dvínandi í töluverðan tíma. Ég sagði ekkert um það, ætlaði að sjá hvað sæti, en er búinn að átta mig á því ég það er ekki mitt fag. Í haust mun ég hefja nám í fornleifafræði og annari aukagrein sem mun líklega verða sagnfræði, mannfræði eða önnur grein sem tengist inn á þetta fag. Áhuginn hefur lengi verið til staðar, skrifaði t.d. ritgerð í 10. bekk um þetta starf þegar við áttum að skrifa um fag sem við vildum mennta okkur í. Nú mun ég koma mér í vinnu einhverstaðar og byrja að vinna til að borga niður skuldina sem ég sit uppi með eftir síðustu önn. Þar sem ég náði ekki tilskildum námsárangri sit ég uppi með yfirdráttarskuld hjá bankanum því LÍN borgar ekki fyrr en eftir önn þegar námsárangur liggur fyrir. Þess vegna taldi ég skynsamlegt að segja skilið við þetta núna frekar en að halda áfram í einhverju sem ég hef ekki nægan áhuga fyrir og safna hærri skuldum.

Eftir heimsókn til námsráðgjafa áðan er ég svo búinn að ganga frá lausum endum og fá svör við þeim spurningum sem ég hafði um þessi umskipti, og allt er klárt. Tæknilega séð er ég samt skráður í HAXA (nemendafélag líffræðinema) og ég fer ótrauður í vísindaferð á föstudaginn og á bjórkvöld á Pravda eftir á, ekki að spyrja að því!

Svo er það bara spurningin hvort maður verði í bænum að vinna eða á Stokkseyrinni, sé bara ekki mikla atvinnumöguleika þar ef ég á að segja alveg eins og er. En þetta skýrist allt mjög fljótlega.

That´s all for today, folks.

"Democracy is a failure, because lets face it, people are idiots!"

» 17 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 16:37:46 / HypnoToad

Blog I will and blog I shall!

Hjálpi mér allir heilagir! Þriðja bloggið á 10 dögum, þvílíkur og annar eins dugnaður verð ég nú bara að segja!

En það sem er helst í fréttum er það að það er fyrsta vísindaferð annarinnar í dag, og ég er því miður ekki á leið í hana. Þetta mun vera hin annálaða Sandgerðisferð. Hún er fræg fyrir hámark sukksins, mikið áfengi og síðast en ekki síst, einhverja ógeðslega sterka græna bollu. Langaði mjög að fara, og lét meira að segja skrá mig, en er því miður eitthvað heilsutæpur þessa stundina, slæmur í maga og fleira. Það er kannski fyrir hinu besta bara, ég á það nú til að verða of gráðugur þegar kemur að bollum (the kræklingakvöld fiasco) og er svo að fara í verklega efnafræði á morgun kl.
8:30, þannig það hefði kannski ekki verið mjög sniðugt.

Annað í fréttum er m.a. að í gær kíkti Jenni í heimsókn og við fengum okkur svo að éta um kvöldið. Fengum okkur sína hvora 16" pizzuna með 4 áleggstegundum, og ég náði næstum að klára hana, bara 2 örsmáar sneiðar eftir, sem ég ætla að éta á eftir! Var alveg hættulega saddur eftir þetta skal ég segja ykkur. Um kvöldið prófaði ég svo að taka svona bílpróf á netinu til að sjá hvað ég gæti, og eftir nokkrar tilraunir náði ég 100% árangri á 1mín. 38sek. í 30 spurninga prófi, sem kom mér í 4. sætið á topp 10 listanum! Geri aðrir betur (utan við þessa 3 fyrir ofan mig) betur!

Í fyrradag tókum við Guðjón svo mynd, "This is Spinal Tap", sem er algjör snilld! Ansi steikt. Fjallar um breskt 80´s hair metal band sem er að túra um Bandaríkin. Myndin er víst improvise-uð að stærstum hluta og er einstaklega skondin.

Þá held ég að þetta sé pretty much bara komið, er að fara að ráðast í smá Photoshop vinnu fyrir Valla, og svo bara rólegheit í kvöld held ég.

Smell you later!

"Silence is the virtue of fools."

» 13 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 13:11:54 / HypnoToad

Hver er bestur?

Góðan og margblessaðan daginn kæru lesendur. Ég hef ekki mikið að segja þessa stundina, en vildi einungis koma einu á framfæri: Kobe Bryant er einfaldlega sá allra besti í körfunni í dag!

Rök mín fyrir þessu er leikur hans í gærnótt, en hann skoraði hvorki meira né minna en 81 stig í 122-104 sigri Lakers gegn Toranto Raptors. Hann er annar stigahæsti maður í sögu NBA og hefur nú komist í 70 stiga klúbbinn ásamt Wilt Chamberlain, Elgin Baylor, David Thompson og David Robinson. Ekki slæmur félagsskapur það. Síðan er ekki nóg með að það að hann hafi skorað 81 stig, heldur var hann með frábæra nýtingu, en hann skoraði úr 28 af 46 skotum sínum í leiknum (þar af 7 af 13 þriggja stiga) og 18 af 20 vítaskotum. Þetta sýnir einfaldlega hvað hann er magnaður leikmaður (og hvað leikmennirnir sem spila með honum eru slappir). Þess má geta að bara í seinni hálfleik skoraði hann 55 stig, 14 stigum meira en allt Toronto liðið til samans, og aðeins 4 stigum minna en met Chamberlains í einum hálfleik, sem mun þá vera 59 stig.

Kobe er búinn að vera alveg sjóðandi heitur undanfarið, og í raun allt tímabilið. Hann er að skora 35.9 stig að meðaltali í leik, og þar af 45.5 stig í síðustu 10 leikjum (eftir að hann kom úr banni). Þá er bara að vona að hann spili svona sem lengst!

Ég vildi bara koma þessu á framfæri, þetta er eflaust mjög óáhugavert fyrir marga, en ég sá mig tilneyddan til að hripa niður nokkur orð um þetta.

Go fuck yourself San Diego.

» 7 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 15:53:37 / HypnoToad

Back again...

Nú er víst enn einn blogg-leikurinn í gangi, og að þessu sinni er það eitthvað kitl. Ég var kitlaður af Jenna og hér kemur minn listi:
7 frægar sem ég hef (einhvern tímann) verið skotinn í:

1. Jennifer Aniston þegar ég var að byrja að horfa á Friends
2. Einhver sem var í auglýsingu fyrir eitthvað happdrætti/lottó, whatever, veit eigi nafn
3. Hvíti stratinn hans Hendrix
4. Móðir Teresa
5. Fríða í Fríða og Dýrið fannst mér alltaf voða settleg
6. Kelly Preston í Holy Man
7. Tub Girl

7 hlutir sem ég get:
1. Útbúið heimsins bestu grillbrauð!
2. Étið 3 örbylgjupopppoka í röð án þess að depla auga
3. Týnt gítarnöglum hraðar en jörðin hreyfist
4. Hitt 11 þriggjastiga körfum í röð (bannað að vera bitur Biggi)
5. Keyrt bíl hálfa leið út í Löngudæl
6. Pirrað Valla alveg einstaklega mikið í Minesweeper
7. Spilað á gítar í fleiri klukkutíma samfleitt ef ég er í þeim gírnum

7 hlutir sem ég get alls ekki:
1. Haldið hita á framloppunum
2. Hætt að kaupa gítara
3. Farið fram úr rúminu án þess að “snooza”
4. Verið hófsmaður þegar Tópas og/eða Opal er annarsvegar
5. Gæti ekki teiknað/skrifað vel þó líf mitt væri að veði!
6. Sætt mig við viðurnefnið Fabio
7. Eignast raftæki án þess að lenda í veseni með þau (gítartengd tæki undanskilin)

7 atriði sem ég segi oft:
1. Hmm… (gjarnan í síma)
2. Djiggum dirum díííng (tjái mig oft í gegnum gítarspil)
3. Hættið að taka myndir, ég vil bara fá að lifa eðlilegu lífi!
4. Daginn, ég ætla að fá 2 sneiðar með pepperóní…
5. Helvítis peningar!
6. Hvenær eigum við að æfa?
7. Ég var að leggja mig, svaf ekki mikið í nótt…

7 hljómsveitir sem ég hef séð live og einkenna mig sem manneskju:
1. Iron Maiden
2. Metallica
3. Deep Purple
4. Queens of the Stone Age
5. Foo Fighters
6. Simon and Garfunkel
7. Nevolution

7 hlutir sem ég ætla að geraáður en ég dey:
1. Mennta mig til fulls
2. Taka ljósmyndunarnámskeið
3. Gefa út geisladisk, þó það væri ekki nema bara demo (sjálfur eða með bandi)
4. Skipta um mynd á kortinu mínu
5. Ferðast um heiminn (viðkoma í Ástralíu skylda!)
6. Eignast gamlan amerískan “Muscle Car”
7. Láta hárið vaxa sítt aftur

7 manneskjur sem ég ætla að kitla:
1. Biggi Matt
2. Ösp
3. Guðjón
4. Erla
5. Jón Hall
6. Anna Linda
7. Steini (þú bara verður að blogga eitthvað drengur!)


Þar hafið þið það! 

En já, það er nú orðið svolítið síðan ég hef bloggað, og vegna fjölda áskoranna er ég hér upprisinn með nýtt blogg.

Skólinn er að komast af stað, verklega byrjar í þessari viku í 3 af 4 áföngum þannig þetta er allt að komat í fastar skorður. Síðasta vika var mjög þægileg, alltaf búinn á hádegi bara og ekki mikið að gerast svo sem.

Í síðustu viku skelltum við Valli okkur í bíó á King Kong, og ég verð að segja að ég er stórhrifinn! Finnst hún alveg mögnuð. Maður tók ekkert eftir því að hún var meira en 3 tímar að lengd, hélt manni alveg við efnið út í gegn. Mæli með henni fyrir alla sem hafa gaman af ævintýramyndum, og eiginlega bara myndum yfir höfuð. Algjört skylduáhorf! Ég á ennþá eftir að horfa á mynd frá Peter Jackson sem mér líkar ekki, maðurinn er snillingur, það verður ekki af honum tekið! Þannig þið sem ekki hafið séð, endilega drífið ykkur í bíó á Konginn.

Um helgina var svo síðasti Idol þáttur Guddu, komst því miður ekki áfram úr dómaravalinu. En þetta er mjög góður árangur að hafa komist þetta langt og ég vil bara óska henni til hamingju með þetta, good job! Við vorum þarna á Nasa að horfa á þáttinn og vorum svo viðstödd beinu útsendinguna sem hófst eftir Punk´d. Eftir þetta allt hélt ég beinustu leið niður á Pravda á bjórkvöld líffræðinema. Já, þið heyrðuð rétt, skólinn er byrjaður aftur, sem þýðir að sukkið sé einnig farið af stað. Var þarna til að byrja með með Guðjóni og Mörthu (var á Idolinu og ákvað að drífa sig á Pravda) og fékk mér smá öl. Hitti síðan Dána þarna, Fannar, Söru og fleiri kunnugleg andlit, sem hurfu síðan áður en langt um leið því flestir höfðu setið að sumbli síðan 8 um kvöldið. Seinna um kvöldið hitti ég Helenu og Söru vinkonu hennar (ekki sama Saran). Það var spjallað, reynt að losna við einhvern kauða sem enginn vissi hver var, sat bara þarna, strompaði og sagði ekki orð, og svo rölt nokkra hringi nánast um miðbæinn áður en maður fór heim.

Laugardagurinn/sunnudagurinn var frekar undarlegur. Ég svaf ekki nema í um 4 tíma eftir föstudaginn og gat ómögulega sofnað aftur…nema fyrr en milli 7-8 um kvöldið þegar ég steinrotaðist yfir Simpsons og vaknaði um miðnætti alveg eldhress. Þannig mér tókst að snúa sólarhringnum við á einni helgi, það er nú afrek út af fyrir sig verður að segjast.

Meira verður það ekki, en ég ætla að enda þetta blogg á því að útnefna Valla saklausastu mannveru í þessum heimi eins og við þekkjum hann:

http://hi.is/~gth14/Curious.jpg

Takk fyrir mig!


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 16:20:56 / HypnoToad

Þá hefst það á ný

Þá er hinu ljúfa fríi sem fylgir hátíðunum loks lokið og lífið tekur á sig sína gömlu mynd. Fríið var í heildina bara mjög fínt, mikið slappað af og haft það gott, svolítið djammað um áramótin og soddans. Nú í gær var ég svo að koma aftur í borg óttans því skólinn byrjaði í dag.

Stundataflan kemur bara ágætlega út ef ég næ að skrá mig í þá verklegu hópa sem ég ætla mér. Þá er ég búinn um 1 leitið á mánudögum, 15:50 á þriðju-, miðviku- og fimmtudögum og svo 10:50 á föstudögum, helvíti nice bara. En böggull fylgir skammrifi! Svo er nefninlega mál með vexti að einhvern tímann í febrúar hefst verklega efnafræðin, og hún er á laugardögum! Þvílíkt rugl! Ég get þó prísað mig sælan yfir því að þetta verður bara annan hvern laugardag, en samt, finnst þetta full langt gengið. Allt í lagi að hafa lokapróf á laugardegi, en alls ekki tíma! Fuss segi ég nú bara. En nóg um það. Í ár er ég skráður í frumulíffræði, örverufræði, vistfræði og lífræna efnafræði. Í dag fór ég bara í örverufræði og frumulíffræði. Kennarinn í því síðarnefnda virðist frekar bitur út í lífið og bara almennur fílupúki. Hef heyrt að maður eigi ekki að sitja á fremsta bekk því þá eigi maður það á hættu að vera laminn með priki! Veit ekki hver sannleikurinn er í því, en það skiptir ekki máli þar sem mér líkar best ofarlega fyrir miðju, besta skyggni þar! Kennarinn í örverufræði er aftur á móti hress gamall karl, virðist alveg fínn, og þetta er ágætis efni. Hann er eiginlega samblanda af Leslie Nielsen og Sigurði H. Richer (nýjasta tækni og vísindi). Ég kýs að kalla hann Sigurð H. Nielsen. Þá er það svo bara að taka þessa önn með trompi, sætti mig alls ekki við annað vindhögg!

Eftir skólann fór ég í bóksöluna og keypti ca. 15kg af bókum og hélt mína leið heim. Var svo að koma heim núna úr leiðangri úr Rín, þar sem ég glamraði svolítið á Gibson SG Special í Traynor lampamagnara, ágætt svosem en varð fyrir vonbrigðum. Fór svo á Devitos og fékk mér juicie sneiðar, mm, gerist ekki betra en Devitos. Allt of langt síðan maður hefur bragðað á þessum ljúffengu sneiðum! Eftir tölti ég niður á Hlemm til að kaupa mér strætókort. Mér leið bókstaflega illa að koma þarna inn! Þvílíkur sorplýður sem var þarna samansafnaður! 13-14 ára stromreykjandi vandræða unglingar, ellihrumir rónar og bara almennt undarlegt fólk. Var ekki lengi að borga mitt kort og snáfa þaðan burt.

Nú sit ég svo hér og hef bara ekkert meira að segja. Þá stoppa ég bara hér og kveð í bili. Adios!

"No one has a finer command of language than the person who keeps his mouth shut"

» 15 hafa sagt sína skoðun

30.12.2005 08:36:15 / HypnoToad

Ka...kamú...kamúflas......MYNDAVÉL!

Ég ætla að byrja á að óska þeim sem lesa þetta gleðilegra jóla og vona að komandi ár hafi eitthvað gott í skauti sér!

Svo ætla ég að opinbera niðurstöðurnar úr síðustu könnun:


Framan af var gjafavalið með yfirburða stöðu í þessu, en ég tók eftir því að eftir aðfangadag (eftir messu) hækkaði prósentan hjá messunni gífurlega! Interesting...

Það er nú ekki mikið sem ég ætlaði að segja í þetta sinn, bara svona rétt að checka inn, sýna eitthvað lífsmark. Jólafríið hefur verið fínt hingað til, búinn að taka því rólega, spila Fimbulfamb, glamra, éta góðan mat...gerist ekki mikið betra. Svo er það djamm um áramótin, verður fyrsta djammið mitt í meira en mánuð! Það verður fínt.

Nú undrast eflaust margir yfir tímasetningunni á þessari færslu, en nú er klukkan að nálgast 9 að morgni, og ég er vakandi. Já, ég reyndar ekki bara vakandi, heldur vaknaður! Sólarhringurinn hjá mér var kominn allur í rugl þannig ég ákvað að gera tilraun til að rétta hann af aftur. Ég gerði það þannig að í fyrrinótt svaf ég ekkert, rétt dottaði svo aðeins um daginn og fór svo að sofa um 10 leitið í gærkvöldi. Svo vaknaði ég eldhress í morgun um hálf 7! Ég veit ekki hvert pabbi ætlaði að komast þegar ég kom fram, hann var á leið í vinnu.

En já, ég var að bæta við nýjum lið á síðuna, og það er myndasíða. Hún er hérna til vinstri eins og allar hinar. Þarna mun ég setja inn myndir sem ég er að taka of fiffa svo til aðeins í Photoshop (flestar, ekki allar) og geri þær voða fínar. Endilega skoðið, það eiga eflaust eftir að bætast einhverjar myndir þarna á næstunni. Og eitt varðandi nýju könnunina. Þar sem ég get ekki haft fleiri en 5 valmöguleika lét ég bara aðra golfmyndina vera með, finnst sú sem er í könnuninni flottari og hafði hana þess vegna frekar.

Það verður þá ekki fleira á þessum föstudagsmorgni. Skil við ykkur að sinni, og allir ætla að súpa um áramótin!

Drink what you want, drink what you´re able.
If you´re drinking with me, you´ll be under the table.

» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3